Námskeið í Gervigreind

Með Stefáni Atla Rúnarssyni.
Vilt þú kynnast gervigreindinni ChatGPT?
FEBH hefur fengið til sín Stefán Atla Rúnarsson, sem er mikill áhugamaður um gervigreind, til að vera með hagnýtt og aðgengilegt byrjendanámskeið um helstu möguleika gervigreindarinnar ChatGPT.
Námskeiðið verður fimmtudaginn 22. október 2026 kl. 13:30
í Hraunseli félagsmiðstöð FEBH, Flatahrauni 3 Hafnarfirði.
Um tveggja tíma námskeið er að ræða þar sem farið verður yfir grunninn í ChatGPT.
Verð er 2.500 kr. fyrir félagsmenn FEBH og 3.500 kr. fyrir utanfélagsmenn.
Greiða þarf fyrir námskeiðið fyrir 16. október, greiðsla fer fram í Hraunseli.
Hvetjum alla áhugasama að taka þátt.
Skráning hefst þriðjudaginn 6. október kl. 8:00
í síma 555-0142 og/eða á skrifstofu Hraunsels.