Fréttabréf Félags eldri borgara í Hafnarfirði í nóvember 2026.

Órekjanleg og létt könnun á hreyfingu eldra fólks birt á heimasíðu félagsins febh.is. FEBH hefur átt í góðri samvinnu við…

""

Órekjanleg og létt könnun á hreyfingu eldra fólks birt á heimasíðu félagsins febh.is.

FEBH hefur átt í góðri samvinnu við Íþróttabandalag Hafnarfjarðar ÍBH.

Félagsmenn innan FEBH og eldra fólk í bænum hefur meðal annars notið aðstöðu til hreyfinga í íþróttahúsum bæjarins, með göngu frá Ásvöllum, innigöngu í Kaplakrika, sundleikfimi í Ásvallalaug og púttæfingum í Hraunkoti.

Öldungaráð Hafnarfjarðar kom því til leiðar að tekjuviðmið frístundastyrks til eldra fólks í bænum var hækkað til muna og ætti því að vera frábær valkostur fyrir aldurshópinn til hvers konar heilsueflingar og hreyfingar innan líkamsræktarstöðva og klúbba.

FEBH og ÍBH tóku sameiginlega ákvörðun um að gera létta og órekjanlega könnun með 8 spurningum á hreyfingu eldra fólks í Hafnarfirði sem birt er á heimasíðu Félags eldri borgara í Hafnarfirði, febh.is Könnun sem þessi hefur ekki verið gerð áður og er órekjanleg og er hægt að svara henni til 15. nóvember 2026. Vonum við að þú sjáir þér fært að taka þátt. Þeir félagar sem ekki fá sent fréttabréf eru beðnir um að uppfæra netföng sín hjá félaginu með því að senda póst á febh@febh.is

Könnunin er ekki bundin hreyfingu innan tilgreindra íþróttahúsa heldur á við hverskonar hreyfingu sem hver og einn hefur tamið sér.

Félag eldri borgara í Hafnarfirði er elsta félag á landinu með það að markmiði að gæta hagsmuna eldra fólks. Félagsmenn eru 2.450 og þar af 65 stjórnar – og nefndarmenn. Félagið sómir sér því vel á meðal íþróttafélaganna í bænum hvað stærð og umsvif varðar.

Hafðu samband – við svörum fljótt

Spurningar um aðstöðu, tímasetningar eða skráningu? Sendu okkur línu.