Minning Sigurður Hallgrímsson

Sigurður Hallgrímsson fyrrverandi formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði er látinn. Hann tók við formennsku af Einari Sveinssyni árið 2004…

Minning - Sigurður Hallgrímsson fyrrverandi formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði

Sigurður Hallgrímsson fyrrverandi formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði er látinn.

Hann tók við formennsku af Einari Sveinssyni árið 2004 og gegndi embættinu til ársins 2008 er hann baðst undan endurkjöri.

Sigurður tók við félaginu á 36 starfsári þess og voru þá tvo ár liðin frá því að starfsemin flutti að Flatahrauni 3, í stórt og glæsilegt húsnæði.

Í formannstíð hans fengu sumarorlofsferðirnar innan félagsins notið sín og var farið í myndarlegar ferðir sem voru vel undirbúnar og flottar. Þegar myndir eru skoðaðar frá formannstíð Sigurðar sýna þær kröftugt og skemmtilegt félagsstarf þar sem margir koma saman til að finna sér viðfangsefni sem eru í boði félagsins og gefa dögunum tilgang. Í stjórnartíð hans var velferðarmálum eldra fólks vel fylgt eftir. Á aðalfundi árið 2007 eru kröfur settar fram í sex liðum til bættrar lífsafkomu eldra fólks, sjálfstæðis og fjárforræðis á hjúkrunarheimilum. Áður en Sigurður lauk formennsku sinni var haldið myndarlegt 40 ára afmælishóf og gefin út 40 ára saga félagsins. Í ávarpi hans við útgáfu bókarinnar kemur meðal annars fram þakklæti til stofnenda og allra þeirra sem á undan eru gengnir því án þeirra segir Sigurður „fögnum við ekki víðburðarríku og skemmtilegu starfi í dag“. Það var félaginu styrkur að fá Sigurð Hallgrímsson öflugan og góðan mann í formennsku en þar lagði hann mikinn metnað til starfsins.

Sigurður átti með fyrrverandi formönnum og undirritaðri skemmtilega stund í tilefni af 50 ára afmæli félagsins árið 2018.

Með samfundi fyrrum formanna fékk gleðin notið sín og minningar liðinna tíma rifjaðar upp. Slíkar stundir eru ómetanlega dásamlegar og þroskandi þeim sem taka þátt og hlusta.

Á aðalfundi félagsins árið 2025 færði hann og Erla félaginu farsældar og góðar kveðjur.

Félag eldri borgara í Hafnarfirði minnist Sigurðar Hallgrímssonar með virðingu og þakklæti fyrir hans ómetanlega starf, ánægjulega samveru og góðar stundir.

Við vottum Erlu, börnunum og fjölskyldum hugheila samúð.

Fyrir hönd Félags eldri borgara í Hafnarfirði,
Valgerður Sigurðardóttir
formaður

Hafðu samband – við svörum fljótt

Spurningar um aðstöðu, tímasetningar eða skráningu? Sendu okkur línu.