Samþykkt frá stjórnarfundi FEBH 31. ágúst sl.

Félag eldri borgara í Hafnarfirði leggur áherslu á verðbólguhamlandi aðgerðir í þeim málum er koma að velferð eldra fólks og…

Félag eldri borgara í Hafnarfirði leggur áherslu á verðbólguhamlandi aðgerðir í þeim málum er koma að velferð eldra fólks og heyra undir starfsemi félagsins. Það er gert með því að halda félagsgjöldum og öðrum gjöldum í lágmarki. Bjóða félagsmönnum og þeim er njóta afþreyingar í húsnæði félagsins kaffi og te og selja veitingar á hóflegu verði. Félagið leggur áherslu á að sem flestir geti notið hinnar fjölbreyttu dagskrár sem í boði er. Félagsstarfið er sjálfbært, öflugt og heilsubætandi.

Stjórnin

Hafðu samband – við svörum fljótt

Spurningar um aðstöðu, tímasetningar eða skráningu? Sendu okkur línu.