Allar skýrslur

Skýrsla stjórnar 2025

Dags: 4. maí 2026

Skýrsla stjórnar fyrir árið 2025, flutt á aðalfundi Félags eldri borgara í Hafnarfirði 26.mars 2026

Til hamingju með 58 ára afmælið kæru fundargestir. Aðalfund FEBH skal samkvæmt lögum félagsins halda fyrir 1. apríl ár hvert, þess vegna hafa fundirnir verið haldnir í kringum 26.mars, afmælisdag félagsins en ekki borið upp á þann dag sl. 10 ár fyrr en nú.

Það er því við hæfi í dag að minnast enn frekar á þá hugdjörfu og hugsjónaríku einstaklinga sem stigu skrefið með hagsmuni eldra fólks að leiðarljósi. Þau voru öll félags- og fundarvön og þekkt í bænum, þau bjuggu yfir sameiginlegri framtíðarsýn og félags þroska, pólitísk sjónarmið lögðu þau til hliðar. Það má til gamans geta þess að Jóhann Þorsteinsson fyrsti formaður Styrktarfélags aldraðra (en það hét félagið við stofnun) hafði 23 árum áður eða árið 1945 tekið að sér að verða fyrsti formaður ÍBH.

Á þeim tíma sem félagið var stofnað var efnahagslífið og ástandið í landinu í lægð, verðfall á mörkuðum, aflabrestur, atvinnuleysi og gengisfellingar sem varð til þess að einhverjir hugsuðu sér til hreyfings og fluttu burt af landinu til lengri eða skemmri tíma. Þannig að aðstæður í þjóðfélaginu voru ekki með þeim og kannski var það líka ástæðan fyrir stofnuninni?

Athyglin á sögu félagsins ber alltaf að sama brunni, áhuga frumherjanna sem unnu þrekvirki í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. Þeir voru einir og sér, þar sem ekkert annað félag með hagsmuni eldri borgara að markmiði voru starfandi í landinu. Grunninn sem þau lögðu að félagsandanum, frístundum að loknum vinnudegi, bættri heilbrigðis- og heimilisþjónustu, heimilishjálpinni, sem var sú fyrsta á landinu hér í Hafnarfirði og skattamálum en þeim fannst þurfa að taka á þeim málum að festu. Þau töluðu þá fyrir lægri skatta álögum á eldri borgara eins og við gerum nú. Þá var ellilífeyrir fyrir hjón sem engar aðrar tekjur höfðu 285.000 kr. á ári. Ef þau unnu fyrir 100.000 kr. féll lífeyririnn niður í 185.000 kr. og þau þurftu að borga til viðbótar 3.000 kr. í tekjuskatt. Þau voru skattlögð meira en fólk á vinnumarkaði. Þá voru húsnæðismálin þeim ofarlega í huga og er uppbygging 30 íbúða að Álfaskeiði 64 til vitnis um það. Þau áttu stærstan þátt í því að Hrafnistu var valinn staður við Skjólvang en Elín Jósefsdóttir gekk þar fram fyrir skjöldu. Velferð eldri borgara hefur fylgt félagsandanum hér í þessu félagi frá upphafi. Á stofnárinu voru 67 ára og eldri íbúar Hafnarfjarðar 547 og var formanni félagsins falið að vinna spjaldskrá yfir þá bæjarbúa sem voru fæddi 1908 eða fyrr.

Utanumhaldið hefur verið í höndum félagsmanna alla tíð.

Í Gúttó þar sem starfsemin var í byrjun var tekið í spil, farnar voru dagsferðir sem voru vinsælar og urðu seinna umfangsmeiri. Sumarorlofsferðir voru farnar í 30 ár. Gist var víða um land en Bifröst í Borgarfirði virðist hafa verið vinsælasti staðurinn. Skemmtanir voru haldnar og var Þorrablót haldið fyrst 1994 og er það fastur árlegur viðburður. Þrátt fyrir alla starfsemina voru þau með félagið á hinum ýmsu stöðum í bænum, þau voru í Gúttó, fundarsal Kaupfélags Hafnfirðinga, í Álfafelli íþróttahúsinu Strandgötu, Víðistaðakirkju, Skiphól, Skútunni allt þar til félagið fékk fastan samastað á Reykjavíkurvegi 50 árið 1997. Þar efldist félagsstarfið og flutti það svo hingað á Flatahraun 3, í febrúarmánuði árið 2002. Það er virðing í mínum huga og þakklæti til fólksins sem staðið hefur í stafni frá fyrstu tíð. Sami félagsandinn og lagt var upp með hefur náð fótfestu í öllu starfi hér og fylgt því á þann stað sem það er í dag.

Athyglin beinist ekki síður að þeim sem tekið hafa þátt og viðhaldið öflugri uppbyggingu félagsstarfsins á þeim áratugum sem liðnir eru frá stofnun. Þeir sem sinnt hafa formennsku eru 9 og er einn fyrrverandi formaður á lífi, Sigurður Hallgrímsson sem gegndi embætti formanns frá árinu 2004-2008. Ég átti samtal við Sigga sem er gamall og góður vinur minn bað hann fyrir allra bestu kveðjur til ykkar hér í dag og hefði hann og Erla komið ef veðrið væri ekki svona slæmt. Allra formanna og fyrstu stjórnar er getið á heimasíðu félagsins febh.is

Þar er allra nefndarmanna getið en nefndarstarfið er grundvöllurinn í starfseminni. Fyrir 10 árum voru hér starfandi 12 nefndir en í dag eru þær 20.

Nefndastörfin eru mest áberandi þátturinn í félagsstarfinu þar starfa um 70 manns sem eru tilbúin að leggja sitt að mörkum til að gera gott starf enn betra. Dagskráin endurspeglar þá vinnu skipulag félagsmanna og hugmyndir.

Kynslóðir koma og fara en það eru og verða alltaf nýjar kynslóðir sem eldast, hætta að vinna og vilja tileinka sér skemmtileg viðfangsefni við starfslok. Viðmið fólks breytist því við mótumst að því sem við þekkjum. Með öðrum kröfum, upplifun og reynslu eykst fjölbreytileikinn. Við þá arfleið býr félagið í dag.

Nú gefst tími til að leika sér.

Heilsan er í fyrirrúmi. Heilaleikfimin, hreyfingin og einbeitingin eru mikilvægir þættir í allri starfsemi innan félagsins. Hvort heldur verið er að hlusta, spjalla, syngja, spila, sauma, dansa, ganga eða synda.

Námskeiðin eru vel sótt sem staðfestir að val og hugmyndir félagsmanna falla í góðan jarðveg og fylgja samtímanum.

Dagskráin er send út á heimasíðuna febh.is og á Facebooksíðu félagsins einu sinni í viku.

Áður var farið með skýrslur nefnda hverja fyrir sig af nefndarmönnum. Síðustu 10 árin hefur starfsemi nefndanna verið tekin inn í skýrslu stjórnar.

Alla dagskráliðina er hægt að skoða á síðum FEBH og félagsmenn geta komið, litið við, kíkt í blöðin fengið sér kaffi eða látið sér detta í hug að kíkja á námskeið, eins og á Gaflakórinn en hann söng víða í bænum á árinu 2025 eins og árin á undan, fréttabréf kórsins er á síðum FEBH. Kórinn æfir hér í Hraunseli.

Ferðanefndin hefur staðið fyrir vinsælum ferðum, dagsferðum innanlands og ferðum erlendis. Um að gera að fylgjast með auglýsingum um ferðir, þær seljast fljótt upp.

Dansinn dunar hér á gólfinu einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina og hefur fjölgað í þeim hópi sem sækir böllin, öllum til mikillar ánægju.

Hugarleikfimin er eftirsótt. Í félagsvistina hefur verið vel mætt spilað á allt að 22 borðum suma spiladaga og ekki hefur fækkað í bingói né bridge. Fyrir nokkrum árum voru tölvurnar uppfærðar í bridge og bingó og hefur það bætt gæðin til muna.

Bókmenntanefndin hefur staðið fyrir flottum fyrirlesurum og bókakaffi en það er eins og annarsstaðar vinsælt og gott að koma.

Gönguhópur fer frá Ásvöllum alla mánudagsmorgna kl. 10 og hefur eins og í öðrum hópum fjölgað þar til muna.

Aftur á móti má fjölga frekar í billjard en hér niðri eru tvö borð annað 10 feta og hitt 12 sem allt of fáir spila á. Opið er í billjard alla virka dag frá 8-16. Hvet félagsfólk til að koma og spila.

Ekki er Q-gong undanskilið vinsældum. Í þeirri einbeitingarlist líkama og hugar hefur fjölgað mikið.

Pílan er vinsæl og hefur verið aukið við píluspjaldaskápum á seinni árum, en nú eru komin á markaðinn píluspjöld sem telja sjálf og þarf að uppfæra spjöldin, spilurum til hægðarauka.

Púttnefndin sér um púttið í Hraunkoti og er það mjög vinsælt, má segja að þar sé fullt hús. Páskamótið 2026 er nýafstaðið og var það mjög fjölmennt.

Þorrablótsnefndin sér um þorrablótin sem uppselt er á fljótlega eftir að auglýsingin birtist. Það er eins með þorrablótið og ferðir ferðanefndar þar sem í auglýsingum hefur komið fram að félagsmenn gangi fyrir.

Það er vegna þess að það hefur fjölgað gríðarlega í félaginu. Fyrir 10 árum eða á sama tíma árið 2016 voru samkvæmt skýrslum félagsins 1.164 félagar í FEBH í dag eru þeir 2.412 en um húsið fara um 590-720 manns á viku.

Opið hús hefur verið eins og fram hefur komið rauði þráðurinn í gengum allt starfið, allt frá Gúttó árunum. Á árinu kom Rósa Borgþórsdóttir safnvörður í byggðasafninu með ljósmyndir af gömlum Hafnfirðingum og voru fundarmenn beðnir um að þekkja þá svo hægt væri að skrá nöfnin þeirra hjá safninu og eru þessir fundir vinsælir og mjög skemmtilegir sérstaklega þegar verið er að giska á hver er á myndinni.

Þá var fundur um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk þar sem Helga Ingólfsdóttir fór yfir vinnu nefndarinnar sem skipuð var til verkefnisins.

Janus Guðlaugsson og Linda Hilmarsdóttir í Hress kynntu starfsemi sína. Agnes Þóra Árnadóttir næringarfræðingur fræddi félagsfólk um næringu í mat og drykk og svo í nóvember kom Lúðvík Geirsson hafnarstjóri og sagði frá þeim miklu breytingum sem Hafnarfjarðarhöfn stendur frammi fyrir og kynnti góðan stöðuleika í fjármálum hafnarinnar. Þá spilaði Stórsveit Íslands fyrir okkur 10. desember sl. Halldór Árni Sveinsson hélt málverkasýningu í salnum sem bar heitið Enn Hellisgerði

Laganefndin fór vel yfir lög félagsins fyrir árið 2025 og gerði breytingar en það liggja engar lagabreytingar fyrir fundinum í dag.

Kjaranefndin er á vaktinni og er einn nefndarmanna Kolbeinn Gunnarsson formaður Kjaranefndar LEB.

Línudansinn er mjög vinsæll og er oft þröngt á dansgólfinu en dansarar eru ótrúlega góðir í að passa upp á að hver þeirra njóti sín sem best.

Zumba nýtur vinsælda sem fyrr og er óhætt að segja að þá morgna sem verið er í Zumba og Q-gong sé í minni salnum stærsta kaffihús í Hafnarfirði.

Handverkshópurinn hefur stækkað það mikið að hann var færður í salinn hér á síðasta ári.

Skákklúbbur var settur á laggirnar í júní 2025 og lofar sú starfsemi mjög góðu. Gleði yoga er með nýjustu námskeiðunum og fjölgar í þeim hópi sem og annarsstaðar.

Uppstillinganefnd kynnir starf sitt hér á eftir.

Eins og þið heyrið er starfsemin hér gríðarlega öflug allt byggt á sjálfsprottnu framlagi félagsmanna, ómetanlegt sjálfboðastarf sem unnið er hér í FEBH og má Hafnarfjarðarbær vera stoltur yfir þessu frábæra framtaki í málefnum eldri borgara og heilsueflingu aldurshópsins.

Félagið vinnur markvisst gegn einmanaleika og einangrun. Á árinu 2018 var hvatinn að hætta að selja kaffi og bjóða það í nafni félagsins. Stafræn félagskírteini voru tekin upp árið 2023 sem viðbótarvalkostur. Árið 2024 var starfsemin kynnt á heimasíðu febh.is á íslensku, ensku og pólsku sem vakið hefur athygli en félagið var tilnefnt á árinu 2026 til UT SKÝ verðlauna í flokknum Fjölbreytileika – fyrirmynd ásamt tveimur öðrum fyrirtækjum. Samhliða gaf félagið út vikudagskrá félagsstarfsins á sömu tungumálum. Árið 2025 var sett upp ný heimasíða á grunni þeirrar gömlu, tilgangurinn er að gera hana aðgengilegri og einfaldari. Félagið setur sér það að markmiði að mæta eldra fólki í nútímasamfélagi til að tryggja að enginn verði undanskilinn vegna tungumála eða menningarmunar. Félagið á í góðu samstarfi við ÍBH með aðstöðu í íþróttahúsum bæjarins, göngu í Kaplakrika, sundleikfimi Ásvallalaug og aðstöðu gönguhóps í Haukahúsi á Ásvöllum. Þá á félagið 3fulltrúa þar af formanninn í Öldungaráði Hafnarfjarðar.

Um síðustu áramót tók félagið yfir veitingareksturinn hér. Félagið á að einstaklega gott starfsfólk. Það sýnir sig vel hvernig starfsemin hefur vaxið í þessu húsnæði sem er eins og teygja. Viðleitni, lausnir og velvilji til félagsins endurspeglar hugarfar og áhuga starfsmanna á öllu því sem félagsfólk vill sjá hér verða að veruleika.

Það kom því á óvart hversu litlu máli starfsemin skipti þegar stjórn FEBH fékk fregnir af því í gegnum félagsfólk að félagið væri að missa húsnæðið hér. Þessar fréttir til stjórnarinnar fóru að berast á haustdögum 2024. Farið var á fund bæjarstjóra 4. febrúar 2025 og spurt um stöðu húsnæðismála og var okkur tjáð að ekkert væri þar í gangi. Samt varð orðrómurinn hærri og meiri og var loks staðfestur við formann 25. júní 2025 þegar símtal barst um að samningum hefði verið sagt upp. Stjórnin skrifaði bæjarráði bréf 4. júlí um málið og var það lagt fyrir bæjarráð 18. september. Að svar skyldi ekki berast frá bæjarráði vakti furðu og var boðið til opins félagsfundar 4. september sl. Stjórn FEBH fór að skoða leigusamninginn sem er á milli Hafnarfjarðarbæjar og Verkalýðsfélagsins Hlífar og sá að samningnum hafði ekki verið sagt upp með réttum hætti eins og sagt var frá í bæjarstjórn þann 10. september sl. Stjórn FEBH leitaði til Valgeirs Kristinssonar lögmanns og formanns laganefndar félagsins og fékk það staðfest að stjórn FEBH færi með rétt mál en hann gaf það út í lögfræðiáliti þann 19. september sl.

Haustið 2025 fór í fundi og samtöl til að finna lausn á vandamálum FEBH. Eftir mikið tal, vökur og miklar áhyggjur stjórnar og allra félagsmanna var fundin lausn nú í byrjun ársins 2026. Í febrúar sl. var skrifað undir Rekstrarsamning við FEBH og leigusamningur var gerður á milli Hlífar og Hafnarfjarðarbæjar um leigu á húsnæðinu Flatahrauni 3 til næstu 15 ára sem er glæsilegt og fyllir starfsandann öryggi að nýju.

Það eru 50 ár síðan Lions klúbbur Hafnarfjarðar hóf að skemmta félagsfólki í FEBH. Þeir vinir okkar hafa alltaf komið í febrúar en nú varð breyting á sem á vel við á afmælisdegi. Í lok fundar hefst skemmtun þeirra. Hjartans þakkir kæru Lionsmenn í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar.

Hlýjar þakkir til ykkar allra, stjórnarinnar, félagsmanna og starfsfólks og það fylgja þeim orðum ekki minni virðing og þakklæti en til þeirra sem minnst hefur verið á og á undan fóru.

Hafnarfirði 26. mars 2026

Valgerður Sigurðardóttir formaður

Hafðu samband – við svörum fljótt

Spurningar um aðstöðu, tímasetningar eða skráningu? Sendu okkur línu.