Allar skýrslur

SKÝRSLA STJÓRNAR 2023

Dags: 21. mars 2024

Skýrsla stjórnar Félags eldri borgara í Hafnarfirði fyrir árið 2023 flutt á aðalfundi fimmtudaginn 21. mars 2024.

Fyrir nákvæmlega tuttugu árum eða þann 11. mars árið 2004 á aðalfundi FEBH var meðal annars beint þeim eindregnu tilmælum til bæjarstjórnar og heilbrigðisráðherra að ný heilsugæslustöð tæki til starfa í Hafnarfirði á árinu.

Þá voru um 5000 manns í bænum án heimilislæknis.

Árinu eftir eða á aðalfundi félagsins 2005 var fagnað opnun heilsugæslu í Firði og dagvistaraðstöðu fyrir minnissjúka í Drafnarhúsinu.

Þannig hefur áhrifa félagsins gætt víða í bænum. Í dag fer eftirfylgnin í gegnum öldungaráð Hafnarfjarðar þar sem að félagið á þrjá fulltrúa og er ánægjulegt að segja frá hversu gott samstarf er á milli ráðsins og Hafnarfjarðarbæjar.

Þegar farið er yfir árið 2023 sem var 55 ára afmælisár félagsins er óhætt að segja að á því herrans ári hafi orðið þáttaskil á starfseminni í nýjungum og enn öflugra starfi.

Þar má nefna að á heimasíðu febh.is og Facebooksíðu FEBH má sjá starfsemina kynnta á íslensku, ensku og pólsku.

Félag eldri borgara í Hafnarfirði er fyrsta félagið á landinu sem starfar innan Landssambands eldri borgara sem stígur þetta skref til aukinnar upplýsingar fyrir aldurshópinn en félagið sótti um styrk til LEB vegna verkefnisins. Þá er vikudagskráin send út á síðurnar okkar á þremur tungumálum.

Stafræn félagsskírteini voru tekin í notkun og eru þau viðbótarvalkostur við plastfélagsskírteinin. Með útgáfu þeirra er skref stigið sem önnur félög með sömu markmið starfandi á Íslandi hafa enn ekki tekið. FEBH hvetur félaga til að sína skírteini sín þegar verslað er og spyrja um afslátt og er undantekningalaust orðið við því. Það er því beggja hagur að vera félagi í FEBH, skírteinishafans og félagsins. Rafræn afsláttarbók er á heimasíðunni febh.is en hún er engan veginn tæmandi fyrir verslanir sem gefa afslátt en er góð vísbending.

Kjarni félagsins býr í sjálfbæru nefndarstarfi

Afmælisárið var líka nýtt til eflingar starfseminni, gleðinni og tækifærunum. Innan félagsins starfa 17 nefndir með 67 manns. Þau sem sinna trúnaðarstarfi verða samkvæmt lögum félagsins að vera fullgildir félagar.

Stjórnin samþykkti eftirfarandi í tilefni afmælisársins

Nefndir þær sem starfa innan Félags eldri borgara í Hafnarfirði hafa allar það að markmiði

að gæta hagsmuna og réttinda eldri borgara og gera þeim kleift að vera virkir í samfélaginu og hafa áhrif á umhverfi sitt og stuðla að:

Fræðslu, skemmtana og menningarlífi félagsmanna.

Heilsueflingu með virkri þátttöku í líkamsrækt og hreyfingu.

Skapandi handverksgreinum.

Í tilefni að 55 ára afmæli Félags eldri borgara í Hafnarfirði árið 2023 er lagt til að þær 17 nefndir sem kosnar eru á aðalfundi og hafa fengið erindisbréf sem kveða á um störf þeirra geta leitað styrkja að upphæð allt að 100.000 krónur. Styrkurinn er ætlaður til að efla gagnsemi, viðhalda og styrkja þau markmið er liggja fyrir í lögum FEBH sem samþykkt voru á aðalfundi 23. mars sl. og eru kynnt á heimasíðu félagsins FEBH.is

Styrkveitingin er hugsuð til að gefa möguleika og gæta jafnræðis í ört vaxandi starfsemi innan FEBH

Greinargerð:

Félag eldri borgara í Hafnarfirði er ört vaxandi félag þar sem starfsemin blómstrar sem aldrei fyrr. Fólk sem komið er á eftirlaunaaldur er margt hvert mikið mun frískara en áður var og hópurinn mun fjölmennari.

Til að sinna markmiðum sínum þarf því FEBH að vera í takt við tímann og bjóða fjölbreyttari möguleika í dagskrá sinni. Starfsemin hefur verið sjálfbær en félagar hafa sjálfir greitt fyrir þá afþreyingu sem bætt hefur verið í dagskránna á liðnum árum. Á sama tíma hefur félagsgjöldum verið haldið í lágmarki.

Í svo fjölmennum hópi sem stjórn og nefndir eru gerast hlutirnir. Fjölbreytileikinn í starfinu eykst með hverju ári og endurspeglar samtímann. Hér á Flatahrauni 3, eru settar upp af starfsfólkinu margar sviðsmyndir í sölunum yfir daginn til að koma á móts við starfsemina.

Þorrablót var eitt af fyrstu skemmtunum ársins 2023. Þar stóð Þorrablótsnefndin í stafni og var sem fyrr lögð áhersla á glæsilega dagskrá og sá starfsfólkið okkar um að gera húsakynnin framúrskarandi flott. Þá styrktu góðir aðilar skemmtunina með gjöfum í happdrættið sem gerði stormandi lukku.

Líkamshreyfingarmöguleikar innan félagsins eru margir.

Sumir sækja, sundleikfimi , aðrir Qi Gong, línudans, pílu, billiard, böll, pútt, dansleikfimi, göngur úti eða inni, allt eftir þörfum og löngunum hvers og eins.

Gönguhópurinn sem fer frá Haukahúsinu alla mánudagsmorgna fer ört stækkandi, spjallið og góð útiveran bæta og kæta.

Fóta fimi í línudansinum er framandi gefur ekkert eftir og hefur fjölgað þar svo um munar.

Ekki hefur dregið úr þátttöku í Qi gong þar hefur fólk fundið vellíðan í æfingunum og notið samvista.

Gaflarakórinn syngur af mikilli innlifun fyrir Hafnfirðinga í kirkjum og á öðrum samkomum við góðar undirtektir.

Dansleikjanefndin sér til þess að böll séu haldin og hefur orðrómur um gott dansgólf og góða hljómsveit borist víða.

Spilin, bridge, félagsvist og bingó verður sívinsælla og er að jafnaði ekki spilað á færri en 12 til 14 borðum.

Í pílunni hefur fjölgað sem og í annarri afþreyingu enda aðstaðan hin besta. Eins með biljardinn.

Púttið í Hraunkoti er fjölmennt og eru árstíðar mót þar afar vinsæl.

Bókmenntaklúbburinn er mjög vinsæll. Þangað koma margir góðir gestir og kynna nýjustu og eða aðrar góðar bækur og listir.

Ferðanefndin hefur séð um ferðir innan sem utanlands sem hafa notið gríðarlegra vinsælda. Farið var til Suðurnesja í heimsókn í mars en Suðurnesjamenn voru áður búnir að heilsa upp á félagið og fá leiðsögn um bæinn. Ferðin tókst vel og eru heimsóknir á milli félaga fræðandi og skemmtilegar.

Farin var dásemdarferð til Ítalíu í maí og voru allir sælir og glaðir með ferðina. Ferða gleðin var það mikil að í sama mánuði var sett upp auglýsing fyrir aðventuferð til Dublinar sem var vel sótt. Dagsferð var farin á Hellu, Hvolsvöll, Selfoss og Eyrarbakka 5. september. Þótti ferðin takast einstaklega vel.

Laganefndin hefur rýnt lög félagsins á árinu og verður árangurinn borinn upp hér á eftir.

Eins verður hjá uppstillingarnefndinni hún mun kynna tillögur sínar hér á eftir.

Handverkshópur mætir hér eftir hádegi alla miðvikudaga og má segja að þar sé starfræktur öflugur og skemmtilegur saumaklúbbur.

Dansleikfimi fer fram hér tvisvar í viku fyrir fullum sal og má segja að í lok leikfiminnar og Qi Gong á þriðjudögum og fimmtudögum sé opið ´´i Hraunseli eitt stærstra kaffihús í Hafnarfirði.

Kjör eldra fólks eru afar sjaldan ef nokkurn tíma til umræðu.

Innan FEBH er starfandi Kjaranefnd. Starfsgreinasambandið samþykkti ályktin á 9. þingi sínu í lok október þar sem að fullum stuðningi var meðal annars lýst við þá kröfu LEB að grunnlífeyrir frá TR verði sambærilegur lægsta taxta SGS. Kjaranefndin mun fylgja eftir baráttumálum fyrir félaga.

Á árinu bættist við Stóla Yoga í Bjarkarhúsi. Félagið hefur notið aðstöðu í íþróttahúsum bæjarins, inniganga í Kaplakrika, sundleikfimi Ásvallalaug, Ganga frá Haukahúsi og hefur þátttakan verið það mikil að formanni félagsins var boðið að sitja þing ÍBH og kynna starfsemi FEBH, þar sem félaginu var sýndur mikill áhugi.

Hreyfing og hugarleikfimin er mjög öflug innan félagsins. Þar koma til allir þeir þættir sem tilteknir eru hér á undan og sýna kraftinn, hugmyndaauðgi og frábæra gleði í sjálfbæru starfi innan félagsins sem er svo mikilvægt og skiptir sköpum.

Einbeitingin er nauðsynleg í því sem félagar taka sér fyrir hvort um er ræða hugverk, fótmennt eða handverk, allt spilar þetta saman og endurnýjar sjálfið í okkur hverju og einu og eflir líkamann til tjáningar og heldur fólki lengur heilbrigðu og ungu. Samvistirnar standa síðan í vegi fyrir einmanaleika og einangrun.

Lionsklúbbur Hafnarfjarðar kom fimmtudaginn 23. febrúar og stóð fyrir sinni 35. skemmtun klúbbsins fyrir félagið. Fullt var út að dyrum. Lions klúbbur Hafnarfjarðar er eina félagið í bænum sem haldið hefur áfram að skemmta félagsmönnum en hér á árum áður skiptu félagasamtök því með sér yfir veturinn að halda úti opnu húsi fyrir FEBH.

Viðburðarnefnd opið hús hefur fengið góða gesti árinu, bæði til fróðleiks og skemmtunar en opið hús hefur verið rauði þráðurinn í starfsemi félagsins alla tíð.

Rósa Karen Borgþórsdóttir kom frá Byggðasafninu með myndir af fólkinu í firðinum undir yfirskriftinni Hver er á myndinni.

Í febrúar kom til okkar Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur og prófessor emeritus við Háskóla Íslands.

Úrval Útsýn bauð félögum á skemmtikvöld í mars sem var vel sótt. Þar söng Gaflarakórinn nokkur lög við góðar undirtektir gesta.

Sumarlokun var frá 17. júlí til 15. ágúst.

Í september var boðið til borðtenniskynningar en borðtennis hefur ekki verið á hefðbundinni dagskrá,

Þann 5. október var haldinn opinn fundur á vegur FEBH og Öldungaráðs Hafnarfjarðar Gott að eldast. Gestir fundarins voru: Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir og formaður verkefnisins, Guðlaug Ósk Gísladóttir sviðsstjóri fjölskyldu-og barnamálasviðs Hafnarfjarðar, Elín Ósk Baldursdóttir forstöðumaður stuðnings-og stoðþjónustu Hafnarfjarðar og Helga Ingólfsdóttir formaður verkefnastjórnar Sólvangs. Mjög góð mæting var á fundinn. En báða konurnar sem koma frá bænum eru nýir starfsmenn og eiga gott samstarf með félagsmiðstöðinni í Hraunseli.

Þann 12. Október var Jarmila Hermannsdóttir gestur á Opnu húsi. Yfirskriftin var Lifandi heimild – upplifun eldri borgara. Lifandi heimild er alveg nýr dagskráliður á Opnu húsi sem tókst afburða vel og lofar góðu um framhaldið.

Lokað var á kvennafrídaginn 24. október.

26. október kom Helgi Skúlason ljósmyndari í heimsókn og var með kynningu og myndasýningu á íslenskum fuglum. Sýningin þótti mjög áhugaverð, fallegar myndir hjá Helga.

Stórsveit Íslands stóð svo fyrir skemmtun að kvöldi 22. nóvember sem var vel sótt. Stórsveitin tengdist félaginu á tímum Covid.

Kynning var á starfi félagsins á 70 ára afmælisári þeirra Hafnfirðinga sem fæddir voru árið 1953 og haldið var í Hásölum 30. nóvember.

Tvær félagskonur voru með sýningar sem skreyttu veggi salanna á haustmánuðum þær Rebekka Gunnarsdóttir listmálari og Kristrún E. Pétursdóttir.

Námskeið í afritun og varðveislu hljóðrita kvikmynda og þáttagerð er í umsjá Halldórs Árna Sveinssonar en safn hans frá myndum úr bæjarlífinu því 1982 er grundvöllur námskeiðsins.

„Brúkum bekki“. Á vorfundi Öldungaráðs Hafnarfjarðar 5. maí 2012 var undirritað samkomulag um verkefnið, „Brúkum bekki“, milli Öldungaráðs, FEBH, Félag sjúkraþjálfara og Hafnarfjarðarbæjar. Markmiðið er að stuðla að aukinni hreyfingu eldri borgara.

Félagið á fulltrúa í verkefnastjórn Sólvangs.

Flugger færði félaginu styrktar ávísun annað árið í röð en upphæð hennar hverju sinni byggir á viðskiptum félaga við Flugger.

Það leið að jólum og fyrsta ferð ársins 2024 var komin í auglýsingu. Nefndirnar undirbjuggu jólasamsæti fyrir sitt fólk þegar áramótin nálguðust óðfluga.

Afmælisárið var að lokum komið. Hefðbundin dagskrá félagsins stóð í blóma og félögum fjölgaði hratt.

Fjölmenni var á námskeiðum sem nefndir félagsins stóðu fyrir, sem aldrei fyrr.

Stjórnin fundaði mánaðarlega, tók þátt í Landsfundi LEB í maí, stjórnarkona Rannveig Jónsdóttir færði félaginu bækur eftir föður sinn sem skrifaði af eldmóð og höfðaði til lesenda.

Félagið færist nú nær sextugsaldrinum ferskt og flott.

Ég vil þakka öllu stjórnar- og nefndarfólki fyrir einstaklega metnaðarfullt, mikilvægt og óeigingjarnt starf fyrir félagið.

Þá vil ég fyrir hönd stjórnarinnar þakka öllum félögum sem eru félagar fyrir stuðninginn, það gerir félagið enn kröftugra.

Starfsfólki Hraunsels þakka ég ánægjulegt samstarf, mikilvæga aðstoð, frumkvæði og einstakan áhuga og velferð félaginu sýnda.

Hafnarfjarðarbæ er þakkaður öflugur stuðningur og virðing fyrir sjálfbærni í starfi félagsins.

Hafnarfirði, 21. mars 2024

Valgerður Sigurðardóttir formaður FEBH

Hafðu samband – við svörum fljótt

Spurningar um aðstöðu, tímasetningar eða skráningu? Sendu okkur línu.