Skýrsla stjórnar Félags eldri borgara í Hafnarfirði fyrir árið 2024
flutt á 57. aðalfundi félagsins 27. mars 2025.
Þegar 57. starfsár FEBH hefur göngu sína hefur félagsstarfið sýnt og sannað að frá byrjun starfseminnar hefur aldrei verið litið frá þeim grunngildum sem lögð voru félaginu til í upphafi.
Félagið er elst þeirra félaga á Íslandi sem hefur það meðal annars að markmiði að gæta hagsmuna og réttinda eldra fólks og gera þeim kleift að vera virk í samfélaginu og hafa á þann hátt áhrif á umhverfi sitt. Unnið hefur verið með markmiðin í gegnum ólíka áratugi frá stofnun félagsins þann 26. mars 1968. Frá þeim tíma hafa orðið gríðarlega breytingar í okkar samfélagi og heiminum öllum.
Hér starfa 18 nefndir sem eru grundvöllurinn í allri starfseminni. Þær eru kosnar á aðalfundi og verða 20 með stofnum og samþykki tveggja nýrra hér í dag, handverkshóps og skákklúbbs.
Nefndirnar eru allar sjálfstæðar en vinna samkvæmt erindisbréfi í samráði við stjórn. Lýðræðið fær notið sín þar sem nefndarfólk er á sjötta tug og eru haldnir fundir tvisvar á ári þar sem farið er yfir nefndarstarfið. Stjórn og nefndir eru birtar á heimasíðu félagsins og verða settir inn nýkjörnir félagar eftir fundinn í dag, ásamt skýrslu, stjórnar, lagabreytingum og fleira. En næstu daga er ætlun að uppfæra heimasíðuna.
Stefnt að því að fremsta megni í öllu starfi að endurspegla samtímann, því kynslóðirnar sem taka þátt og móta félagsstarfið gera ólíkar kröfur til afþreyingar en þær sem á undan gengu.
Það er því óhætt að segja að félagstarfið hér sé í sífelldri endurskoðun, síungt, hugmyndaríkt, fjölbreytt og skemmtilegt, tilbúið að taka á móti nýjum stækkandi kynslóðum sem verða með hverju árinu yngri á sál og líkama.
Hafnarfjarðarbær á enga aðkomu að félagsstarfinu.
Hafnarfjarðarbær sér félaginu fyrir húsnæði með því að borga leigu til Verkalýðsfélagsins Hlífar sem er eigandi hússins. Samningur um leiguna milli Hafnarfjarðarbæjar og Hlífar var gerður þegar húsið hér var í byggingu og var síðan opnað með formlegum hætti fyrir starfsemina í febrúar árið 2002. Áður hafði félagsstarfið farið fram á Reykjavíkurvegi 50 og áður en það kom til á hinum ýmsu stöðum í bænum. Það var því mikill fengur fyrir félagið á fá svona stórt húsnæði sem færði því alla möguleika á að þróast og dafna. Og það hefur svo sannarlega gengið eftir.
Hér í sölunum eru settar upp margar sviðsmyndir yfir daginn til að koma á móts við þéttsetna og ólíka dagskrá sem nefndirnar bjóða upp á í samstarfi við stjórn.
Starfsfólkið Linda, Gurrý og Þórdís eru starfsmenn sem Hafnarfjarðarbær leggur félaginu til. Þær hafa á síðustu árum tekið að sér á hlaupum milli dagskrárliða að breyta sviðsmyndinni í sölunum til að dagskráin sem nefndirnar hafa lagt til, fái sinn tíma og notið sín. Um húsið fara 590-720 manns á viku.
Það skiptir gríðarlega miklu fyrir sjálfbæra starfsemi félagsins að eiga að svo gott starfsfólk sem þær eru.
Fyrir nokkrum árum ákvað stjórnin að kaffi skyldi vera ókeypis fyrir þá sem koma í Hraunsel. Er þetta liður félagsins í baráttu gegn einmanaleika og einangrun. Nú hefur félagið tekið yfir sölu á meðlæti í kaffitímum á ný. Áður var sala á meðlæti á vegum félagsins, svo á einhverjum tíma fyrir mörgum árum fór hún yfir til Hafnarfjarðarbæjar en stjórnin ákvað nú um áramótin síðustu að taka hana yfir að nýju. Leigður hefur verið posi svo að gestir og gangandi geti greitt með greiðslukorti.
Þegar litið er yfir árið 2024 sést hversu öflug starfsemin er og mikill áhugi að vera félaginu samferða en á árinu gengu 280 félagar í félagið.
Árið hófst með auglýsingu frá Þorrablótsnefnd á Þorrablóti sem haldið var á bóndadegi 26. janúar þar sem Skógræktin var þema ársins 2024 og öll borð merkt nafni trjáa. Þorrablótin eru haldin fyrir fullu húsi.
Auglýst var síðan á vegum línudansnefndar námskeið sem var vel sótt þar sem margir vilja læra sporin í línudansi.
Púttnefndin í Hraunkoti stóð fyrir mótum tvisvar á árinu 2024 bæði á jólum og páskum. Þar má segja að það sé orðið fullt hús í púttinu, slík er aðsóknin.
Hver er á myndinni Rósa Borgþórsdóttir kom tvisvar á árinu frá byggðasafninu á Opið hús sem viðburðanefndin sér um en hún kom með gamlar myndir og voru gestir duglegir við að finna út hvaða gömlu Hafnfirðingar birtust á myndunum.
Gleði Yoga er skemmtilegt og er eitt af nýju námskeiðunum. Það fór fyrst af stað í Bjarkarhúsi en færði sig yfir í Hraunsel i október sl.
Bókmenntaklúbburinn er annan hvern fimmtudag kl. 13.00. Bókmenntaklúbburinn nýtur mikilla vinsælda. Þangað koma góðir fyrirlesarar og flytja fróðleg og skemmtileg erindi.
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar hélt sína árlegu skemmtun 22. febrúar fyrir fullu húsi. Klúbbnum er vel þakkað með bréfi fyrir framlag þeirra til gleði og skemmtunar.
Bingó er spilað alla miðvikudaga kl 13.00. Bingónefndin stóð fyrir páskabingói sem er orðin árlegur viðburður og vel sótt. Tölvutæknin var tekin í notkun í bingó fyrir nokkru síðan og virðist hún skila sér mjög vel.
Billjardstofan niðri er opin frá 08.00 -16.00 alla virka daga. Það eru yfirleitt þeir sömu sem koma og spila. Borðin eru flott hérna niðri og eru félagsmenn hvattir til að koma og spila.
Bridge er á þriðjudögum og föstudögum kl. 13.00 Spilað er á 12-15 borðum.
Bridgenefndin stóð fyrir jólamóti í tvímenningi sem að tókst vel.
Dansleikfim er á þriðjudags og fimmtudagsmorgnum kl.09.00 Hún er mjög vinsæl og er fjöldi sem sækir hana. Utan um dansleikfimina heldur dansleikfiminefndin.
Ferðanefndin auglýsti siglingu á Dóná sem farin var í október sl. Utanlandsferðir sem og dagsferðir innanlands á vegum ferðanefndar eru eftirsóttar. Farið var austur að Skógum og tókst ferðin ljómandi vel.
Dansleikjanefndin sér um böllin. Þau njóta sífelldra vinsælda og voru á árinu 2024 haldin böll einu sinni í mánuði. Á síðasta ball mættu um 90 manns. Línudansböll eru ný hjá félaginu og smella inn í kramið.
Gönguhópurinn hittist á Ásvöllum alla mánudaga kl. 10.00 og tekur ákvörðun um hvert skal halda þann daginn. Gönguhópurinn tók þátt í verkefninu brúkum bekki sem félagið er aðili að og gekk Vellina til að koma með hugmyndir um hvar best væri að setja niður bekki, en til stendur að setja bekki niður á gönguleiðirnar í hverfinu eins og annarsstaðar í bænum. Þegar hópurinn kynnti tillögu sínar vakti hann athygli skipulagsins á bættri götumerkingu í leiðinni.
Gaflarakórinn var 30 ára á árinu 2024 og hélt glæsilega afmælistónleika að því tilefni 2. maí sl. í Víðistaðakirkju. Þá söng kórinn á uppstigningardag í Hafnarfjarðarkirkju á degi eldri borgara og í Víðistaðakirkju í nóvember og hélt jólatónleika í desember.
Sumarlokun var frá 10. júlí til 14. ágúst.
Oi gong kínverska leikfimin er stunduð hér alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10.00. Æfingarnar eru uppbyggjandi, endurnærandi fyrir líkama og sál.
Pílan er mjög vinsæl og er mælikvarðinn á vinsældunum að áður var á veggnum í litla sal einn píluskápur en nú eru þeir þrír.
Í Opið hús í október heimsóttu okkur nemendur frá tómstunda-og félagsmálafræði HÍ. og voru þau með árið 1970 til kynningar. Þá kom lögreglan til okkar í Opið hús nóvember og fór yfir forvarnir.
Félagsvist er spiluð alla mánudaga kl.13.00. Spilað er á 13 – 17 borðum. Áhugi fyrir spilamennsku er mikill og fer vaxandi.
Laganefnd. Sér um að rýna lögin og endurskoða þau þannig að þau spegli samtímann. Í dag verða lagðar fram tillögur að lagabreytingum sem legið hafa frammi á skrifstofu félagsins til kynningar síðustu viku en það er í samræmi við lög félagsins.
Handverkshópur hittist hér í Hraunseli alla miðvikudaga kl.13.og á mánudagsmorgnum kl. 10 hittist líka myndlistahópur sem fellur undir handverkið. Í dag verður hann 19. nefndin sem samþykkt verður ásamt Skákklúbbnum Skák og mát en hann er glænýr og verður 20 nefndin hjá Febh.
Stórsveit Íslands kom hér á vegum viðburðarnefndar ásamt söngvurum sínum og héldu tónleika í Hraunseli þann 11. desember sl.við fögnuð áheyrenda.
Kjaranefndin heldur utan um kjaramál eldri borgara. Einn fulltrúi frá kjaranefnd Febhi situr í kjaranefnd Landssambands eldri borgara. Verkalýðsfélagið Hlíf tók undir með Febh með yfirlýsingu sem birt var á Facebook í janúar um að ná niður vöxtum og verðbólgu og standa með eldri borgurum um að hækka grunnlífeyrir frá TR.
Uppstillingarnefnd sér um að koma með tillögur varðandi kosningar í stjórn og nefndir fyrir aðalfund. Vinnan nefndarinnar verður lögð hér fram á eftir.
Sumarlokun var frá 10. júlí til 14. Ágúst en lokunin er fastur liður í starfsseminni.
Febh á formanninn og tvo fulltrúa í öldungaráði Hafnarfjarðar. Þar eru til umfjöllunar öll mál sem viðkoma eldra fólki. Vegna umsagnar öldungaráðs í febrúar 2024 var viðmiðun á tekjum einstaklinga til frístundastyrks hækkaðar frá því að vera 442.912 kr. samkvæmt skattframtali 2022, í 633.500 kr., var þetta gert til samræmis við tekjuviðmið á niðurfellingu fasteignagjalda
Þegar vetrarveður ríkir getur bílaplanið hér fyrir utan orðið ansi hált og erfitt yfirferðar. Félagið þarf sjálft að sjá um planið hér úti og samdi því ásamt fyrirtækjunum hér á efri hæðinni Flatahrauni 3 við verktaka til að sjá um það í hálku og snjó. Þá sér verktaki um að snyrta lóðina yfir sumartímann.
Þann 13. mars var stofnuð sjálfseignarstofnunin Geymd, þar sem lögð var fram skipulagsská um safn Halldórs Árna Sveinssonar. Safnið hefur hann skapað með starfi sínu meðal annars við myndatöku, framleiðslu sjónvarpsþátta um mannlífið í Hafnarfirði á síðustu fjórum áratugum og er safnið gríðarlegt að vöxtum. Saga Hafnarfjarðar heimasíða verkefnisins verður formlega opnuð í lok aðalfundar.
Við verðum vör við að stór kynslóð er að komast á lífeyrisaldur. Þegar ég tók við formennsku voru 1.164 félagar í Febh en í dag eru þeir 2.282. sem sagt fjölgað um 1.118 manns þrátt fyrir fráföll. Félag eldri borgara í Hafnarfirði er á stærð við íþróttafélag í bænum.
Starf nefndanna er sjálfsprottið, öflugt og ómetanlegt fyrir tilveru Félags eldri borgara í Hafnarfirði. Mikil fjölgun er í öllum hópum sem staðfestir hversu rétt er og vel valið í námskeiðahaldi þar sem fjölbreytileikinn fær notið sín, í áhugaverðri og góðri dagskrá.
Þetta fyrirmyndar nefndarstarf sem býr til sjálfsprottið félagsstarf staðfestir sjálfbærnina í allri starfseminni sem er einstakt fyrir Félag eldri borgara í Hafnarfirði, mjög mikilvægt og félaginu styrkur sem þarf að standa vörð um.
Ég vil fyrir hönd stjórnarinnar þakka ykkur öllum, nefndarfólki og starfsfólki ómetanlegt framlag ykkar, hugmyndaauðgi og gleðina sem að þið færið félaginu í störfum ykkar.
Ég vil þakka stjórn- og varastjórn ánægjulegt og gott samstarf. Það er mikilvægt í allri samvinnu eins og unnin er í Félagi eldri borgara í Hafnarfirði að geta unnið saman sem einn maður.
Það er í mörg horn að líta hjá stóru félagi en það er líka einstaklega gefandi og skemmtilegt
Hafnarfirði 27. mars, 2025
Valgerður Sigurðardóttir
formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði