Ítalíuferð með Félagi eldri borgara í Hafnarfirði örfá sæti laus.

Ítalíuferð með Félagi eldri borgara í Hafnarfirði 29.09 – 04.10 Skráning í ferðina hefst miðvikudaginn 27. janúar kl. 8:00 í…

Ítalíuferð með Félagi eldri borgara í Hafnarfirði 29.09 – 04.10

Skráning í ferðina hefst miðvikudaginn 27. janúar kl. 8:00 í síma 5550142 og/eða í Hraunseli.

29.09. Ekið frá Hafnarfjarðarkirkju klukkan 05:00 til Keflavíkur. Flogið frá Keflavík með FI-598 klukkan 08:20 til Feneyja og lent þar klukkan 15:00. Þaðan er ekið til bæjarins Bussolengo, sem er örskammt frá bæði Gardavatninu og borginni Verona. Þar gistum við næstu 4 nætur á Montresor Hotel Tower. Kvöldverður á hóteli.

30.09. Skoðunarferð um Gardavatnið. Garda er stærsta stöðuvatn á Ítalíu. Við byrjum á að aka til Riva del Garda, við norðurenda vatnsins og höldum svo þaðan til Limone.. Eftir að hafa gert góðan stanz í Limone siglum við svo til Malcesine. Þar stoppum við einnig til að skoða okkur um áður en haldið er heim til Bussolengo. Kvöldverður á hóteli.

01.10. Fyrir hádegi er farið í stutta ferð um sveitina, sem er rómuð fyrir vínrækt, Valpolicella. Þar lítum við inn hjá vínbónda, fræðumst um afurðir hans og fáum síðan að smakka á þeim yfir léttum hádegisverði. Síðdegið frjálst og kvöldverður á hóteli.

2.10. Dagsferð til Verona. Verona er forn og falleg borg, sem er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Þar er meðal annars er að finna eitt bezt varðveitta hringleikahús frá dögum Rómverja, Arena, og þar bjuggu elskendurnir Rómeó og Júlía, sem Shakespeare gerði ódauðleg í leikriti sínu. Við göngum um miðbæinn, sjáum m.a. hringleikahúsið, Piazza della Erbe (markaðstorgið), fallegar götur og sögufræg torg og lítum einnig inn í húsagarðinn hjá Júlíu og sjáum svalirnar hennar. Við fáum síðan frjálsan tíma til að skoða okkur um í þessari fallegu borg. Kvöldverður á hóteli.

03.10. Um hádegi verður haldið til Feneyja. Feneyjar eru sérstök borg, sem á sér litríka sögu. Þegar til Feneyja kemur förum við bátum til miðborgarinnar og innritum okkur þar á hótel. Eftir að hafa kastað aðeins mæðinni verður farið í kvöldgöngu, þar sem komið verður við á „bacaro“ dæmigerðum feneyskum „skyndibitastað“, þar sem við fáum að smakka cicchetti og vín. En síðan verður haldið á veitingastað og snæddur kvöldverður. Siglt heim að því loknu.

04.10. Frjáls morgun til að rölta um þessa fornu heimsborg, áður en siglt er af stað út á flugvöll. Flogið heim með FI-594 klukkan 16:10 og lent í Keflavík klukkan 18:50. Ekið til Hafnarfjarðar.

Áætlað verð: 338.400,-

Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi, morgunverður, kvöldverður, allur akstur og skoðunarferðir samkvæmt lýsingu, og íslenzk fararstjórn.

Aukagjald fyrir einsmannsherbergi: 48.000,- Nafnalisti verður að liggja fyrir 18.maí 26.

Verð miðast við gengi og forsendur 20.11. 2025 og minnst 35 greiðandi farþega

Hvað aðra skilmála varðar vísast í “almenna ferðaskilmála” á heimasíðu okkar ferdir.is.

Í öllum ferðum má gera ráð fyrir einhverjum göngum.

Farþegar þurfa því að geta komizt leiðar sinnar hjálparlaust, eða útvega sjálfir þá aðstoð, sem þeir kunna að þurfa. Almennt eru gönguleiðir ekki langar nema þær séu valkvæðar.

Feriðin er á vegum Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar ehf.

Vesturvör 34, 200 Kópavogur Sími: 520 5200

netfang: outgoing@gjtravel.is, veffang: www.ferdir.is

Hafðu samband – við svörum fljótt

Spurningar um aðstöðu, tímasetningar eða skráningu? Sendu okkur línu.