Dagsferð – Snæfellsnes- 25. júní 2026

Dagsferð er fyrirhuguð með Félagi eldri borgara í Hafnarfirði fimmtudaginn
25. júní 2026. Lagt verður af stað frá Flatahrauni 3 í Hafnarfirði kl. 9:00.
Ekið sem leið liggur til Borganess þar verður stoppað í smá stund og ekið um bæinn.
Þaðan verður ekið að Gerðubergi sem er hamrabelti úr grágrýti, myndarlegur og reglulegur stuðlabergshamar.
Því næst verður ekið til Stykkishólms og snæddur hádegisverður, súpa og kjúklingur á Hótel Stykkishólmi. Látið okkur vita ef þið eruð með ofnæmi.
Eftir matinn verður farið á Byggðasasafnið Norska húsið í Stykkishólmi.
Þaðan verður ekið til Grundarfjarðar og svo sem leið liggur til Hafnarfjarðar.
Áætluð heimkoma á Flatahraun um kl. 19.
Skráning hefst 21. maí kl. 8:00 í síma 5550142 og/eða í Hraunseli .
Hægt er að koma í Hraunsel að Flatahrauni 3 frá kl. 8-16 alla daga og
ganga frá greiðslu sem þarf að vera lokið 19. Júní.
Hægt er að greiða með korti og/eða pening.
Félagsmenn með gild skírteini grei ða 15.000 kr. Aðrir greiða 16.500 kr. Hlökkum til að ferðast með ykkur, ferðanefndin