FUNDUR MEÐ FRAMBJÓÐENDUM ÞEIRRA STJÓRNMÁLAFLOKKA SEM BJÓÐA FRAM Í HAFNARFIRÐI Í KOMANDI SVEITARSTJÓRNARKOSNINGUM.

Félag eldri borgara í Hafnarfirði stendur fyrir fundi með frambjóðendum þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl nk. í Hraunseli Flatahrauni 3 og hefst kl. 13.30. og er áætlað að honum ljúki ekki seinna en kl.16.00.
Tilgangur fundarins er að gefa frambjóðendum tækifæri til kynna framboð sín og áherslur í málefnum eldri borgara í bænum.
Dagskrá:
1. Fundur settur
2. Dregið um röð frambjóðenda
3. Flutt ávörp
4. Fyrirspurnir úr sal
5. Lokaorð
6. Fundi slitið
Kaffi í boði félagsins
Stjórnin