Aðalfundur Félags eldri borgara í Hafnarfirði

58. Aðalfundur Félags eldri borgara í Hafnarfirði verður haldinn í Hraunseli Flatahrauni 3, fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 14:00. Húsið…

58. Aðalfundur Félags eldri borgara í Hafnarfirði

verður haldinn í Hraunseli Flatahrauni 3,

fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 14:00.

Húsið opnar kl. 13:30.

Dagskrá aðalfundar:

1. Skýrsla stjórnar

2. Ársreikningar

3. Tillaga um breytingu á árgjaldi

4. Kosning formanns

5. Kosning stjórnar, aðal- og varamanna

6. Kosning í nefndir

7. Kosning skoðunarmanna reikninga

8. Lagabreytingar

9. Önnur mál

Að loknum verkefnum aðalfundar mun

Lionsklúbbur Hafnarfjarðar bjóða til skemmtidagskrár en klúbburinn hefur boðið Félagi eldri borgara til kaffisamsætis, söng- og danskemmtunar í tæp 40 ár.

Stjórnin

Hafðu samband – við svörum fljótt

Spurningar um aðstöðu, tímasetningar eða skráningu? Sendu okkur línu.