
Dagsferð um Kaldadal og Borgarfjörð 22. ágúst 2022
Ekið klukkan 09:00 frá Hafnarfjarðarkirkju til Þingvalla þar sem farið verður í stutta göngu upp Almannagjá og síðan upp á Lögberg.
Þaðan er ekið um Kaldadal í Borgarfjörð, stansað í Húsafelli og síðan haldið að Hraunfossum þar sem snæddur er hádegisverður.
Eftir máltíðina er svo ekið í Reykholt og gengið að Snorralaug en síðan haldið að Deildatunguhver og litið á þennan vatnsmesta hver í Evrópu.
Að lokum ökum við svo heimleiðis yfir Dragann og um Hvalfjörðinn.
Verð á mann er 12.500,-
Innifalið í verði er allur akstur og hádegisverður við Hraunfossa.
Lágmarksfjöldi er 30 manns.
Áætluð heimkoma milli kl. 18:00 og 19:00
Skráning eftir 8. ágúst í síma 555-0142 eða á skrifstofu Hraunsels.
Lögfræðingur verður við

Fegurð vetrarins er oft vanmetin. Suðurströndin og umhverfi Vatnajökuls eru heillandi í vetrarstillum og maður upplifir sig jafnvel eins og einan í heiminum. Nú bjóðum við skemmtilega ferð um Suðurströndina í vetrarbyrjun með gisting á Kirkjubæjarklaustri, þar sem við munum gera vel við okkur og heimsækja áhugaverða staði.
18.11. Brottför klukkan 10:00 frá Hafnarfjarðarkirkju og ekið suður um land til Kirkjubæjarklausturs. Meðal annars verður, stanzað við Seljalandsfoss og Skógafoss og ekið niður í Reynisfjöru. Hádegisverður á Hótel Dyrhólaey í Mýrdal. Komið undir lok dags að Hótel Klaustri, þar sem gist verður næstu tvær nætur. Kvöldverður þar.
19.11. Eftir morgunverð er ekið austur á bóginn. Farið um Skaftafell að Jökulsárlóni og stanzað þar. Síðan verður ekið að Hala í Suðursveit þar sem við snæðum hádegisverð og heimsækjum Þórbergssetur. Haldið aftur heim á Hótel Klaustur. Um kvöldið er boðið upp á fordrykk áður en stezt verður að 3ja rétta hátíðarkvöldverði.
20.11. Haldið heim á leið og m.a. annars litið við í Fjaðrárgljúfri (ef færð leyfir), Skógasafn heimsótt og ekið um Fljótshlíðina. Hádegisverður á leiðinni.
Verð á mann er 76.850,-
Innifalið í verði er gisting í tveggjamanna herbergi á Hótel Klaustri, morgunverður, kvöldverður, hádegisverður, aðgangseyrir að Skógasafni og Þórbergssetri, allur akstur samkvæmt lýsingu og leiðsögn.
Aukagjald fyrir einsmanns herbergi er 12.500,-
Verð miðast við að lágmarki 30 manna hóp.
Skráning í Hraunseli og eða í síma 5550142